Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, segist hafa brotnað niður þegar hún varði Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, vantrausti gegn eigin sannfæringu árið 2023. Hún rifjar upp þá reynslu á Facebook-síðu sinni í samhengi við ákvörðun Ingvars Þóroddssonar að ganga úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Jódís segir þingmenn eiga að fylgja eigin sannfæringu.
Í færslunni segir Jódís að margir kalli Ingvar svikara fyrir flokksskiptin, en bendir á að samkvæmt 48. grein stjórnarskrárinnar séu alþingismenn eingöngu bundnir við sannfæringu sína.
„Það er ekki auðvelt að standa einn gegn öllum hinum og halda fast í eigin sannfæringu,“ skrifar hún. Hún segir nýjan þingmann geta átt erfitt með að horfa upp á stefnu flokks síns víkja við stjórnarmyndun. Hún þekki ekki til innanbúðarmála Viðreisnar en telji menningu innan stjórnmálaflokka einkennast meðal annars af elítisma og hrossakaupum.
Jódís segir einn erfiðasta dag sinn á Alþingi hafa verið þann sem hún varði Jón Gunnarsson vantrausti. Hún hafi viljað greiða atkvæði með vantraustinu en verið sagt að það myndi sprengja ríkisstjórnina og torvelda framgang mála sem hún barðist fyrir. „Ég brotnaði. Ég fór að skæla. Og ég varði Jón Gunnarsson vantrausti.“ Hún segir ákvörðunina hafa verið ranga.
Vantrauststillaga var lögð fram gegn Jóni sem dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, 29. mars 2023 vegna þess að hann hafði beitt sér gegn afhendingu gagna frá Útlendingastofnun til Alþingis. Flutningsmenn töldu hann hafa brotið gegn þingskapalögum og upplýsingarétti Alþingis. Tillagan var felld 30. mars 2023 með 35 atkvæðum gegn 22. Jódís Skúladóttir var meðal þeirra 35 þingmanna sem greiddu atkvæði gegn tillögunni.
Jódís telur valdamenningu innan þingflokka eina af ástæðum þess að þingmenn gefist upp og fari. Hún segist ekki vita hvort Ingvar hafi verið beittur þrýstingi innan síns þingflokks, en þekki af eigin raun hversu erfitt geti verið að standa gegn flokksaga.
Jódís segir Ingvar hafa viðurkennt mistök við atkvæðagreiðslu um samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar og beðist afsökunar. „Ég er afar stolt af Ingvari,“ segir Jódís og tekur fram að þau séu að flestu leyti ósammála í pólitík. „Það eru nefnilega ekki svik við kjósendur að viðurkenna mistök og fylgja eigin sannfæringu.“
Í júní 2024 lagði Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, fram vantrauststillögu á Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, matvælaráðherra úr röðum Vinstri grænna, vegna deilna um hvalveiðar. Jón Gunnarsson var eini stjórnarliðinn í sama ríkisstjórnarsamstarfi sem sat hjá í stað þess að greiða atkvæði gegn vantrauststillögunni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir